Einstefna í Brighton Siggeir Ævarsson skrifar 25. apríl 2024 18:31 Phil Foden fagnar með liðsfélögum sínum eftir að hafa komið Manchester City í 0-3 gegn Brighton. getty/Zac Goodwin Englandsmeistarar Manchester City máttu ekki við því að misstíga í toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar þegar liðið sótti Brighton heim og gerðu það svo sannarlega ekki. Leikurinn var í raun algjör einstefna frá upphafi til enda en Kevin De Bruyne kom City á bragðið á 17. mínútu. Þá var komið að Phil Foden sem skoraði tvö mörk áður en flautað var til hálfleiks. Julián Álvarez gerði svo út um leikinn á 62. mínútu eftir undirbúning frá Kyle Walker. Walker lagði einnig upp fyrsta mark leiksins og er þetta í fyrsta sinn sem Walker leggur upp tvö mörk í sama leiknum í ensku úrvalsdeildinni. City-liðar færast með sigrinum upp í 2. sæti, stigi á eftir Arsenal og tveimur stigum á undan Liverpool en liðið á leik til góða á bæði liðin sem eiga fjóra leiki eftir hvort. Enski boltinn
Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Íslenski boltinn
Uppgjör og myndir: Keflavík - Grindavík 89-82 | Mögnuð frammistaða Keflavíkur tryggði oddaleik Körfubolti
Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Íslenski boltinn